Höfundur vefsíðu er kennari með M.Ed. -gráðu frá Háskóla Íslands á kjörsviðinu skóli án aðgreiningar og fjölmenning.

Markmiðið er að styðja við nemendur sem þurfa að efla og tileinka sér grunnorðaforða. 

Efni síðunnar er hugsað sem stuðningsefni með námsefni frá Menntamálastofnun. 

Allt námsefnið er unnið í frítíma og afrakstur margra ára vinnu samhliða kennslu og námi.

Lögð er áhersla á myndræna framsetningu með húmor og hljóðum.

Notendur þurfa aldrei að hlaða niður appi/forriti eða loka truflandi auglýsingum.  

Myndirnar á síðunni eru ýmist keyptar af fyrirtækinu Freepik Inc. eða sóttar af Pexels.

Sendið ábendingar á dadikennari@gmail.com og ritvillur verða lagfærðar.

Efnið á síðunni er gjaldfrjálst og þannig verður það alltaf.