Í Íslenska málhljóðakassanum eru 58 flokkar yfir íslenska samhljóða og samhljóðasambönd. Lesið nánar um þetta góða námsefni hér 👉👀 📑.
Námsleikirnir á þessari síðu eru að miklu leyti byggðir á orðalistum úr Íslenska málhljóðakassanum og eru hugsaðir sem stuðningsefni við hann.
Nemendur eiga að ...
* hlusta 🔊 🎧
* endurtaka 🗣🦜
* skoða myndina 👁🗨 🖼
* og raða bókstöfum 🧩 ✅ í rétta röð.
Við leggjum áherslu á hittni og lærum að tengja saman hljóð og bókstafi í gegnum leikinn.
Við vinnum alltaf með 10 orð í senn og leggjum áherslu á ákveðin málhljóð.
Ég hvet ykkur öll til að skrifa orðin niður þegar þið ljúkið við hvern flokk og þjálfa ykkur saman í að nota þau í heilum setningum.
Það er mikilvægt að tala um orðin á skemmtilegan hátt, leika sér með þau og gera þau áhugaverð.
Hvernig myndir þú nota orðið í setningu?
Athugið að ég uppfærði listann, tók út orð sem mér fannst ekki eiga við í dag og setti inn orð sem eru tíðari og tengjast frekar reynsluheimi barna.
Nemendur eiga að ...
hlusta 🔊 🎧
endurtaka 🗣🦜
skoða mynd👁🗨 🖼
raða rétt🧩 ✅
Ekki klárt.
Nemendur eiga að ...
hlusta 🔊 🎧
endurtaka 🗣🦜
skoða mynd👁🗨 🖼
lesa og velja rétt✅
Væntanlegt