,,Sjónrænn orðaforði vísar til hæfni lesara til að þekkja orðmyndir á sjálfvirkan og fyrirhafnarlausan hátt þannig að hann geti einbeitt sér fullkomlega að merkingu orðsins en stærð sjónræns orðasafns hefur áhrif á lesfimi nemandans. Þessi sjálfvirkni verður til eftir því sem lesarinn sér orðmyndina oftar en fjöldi skipta, sem það tekur lesara að festa orðmynd í langtímaminni, er nokkuð einstaklingsbundinn. Mikilvægt er að þjálfa sjónrænan orðaforða í gegnum mikinn lestur á samfelldum texta en stundum getur verið að gagnlegt að grípa til þjálfunar orðalista til að auka fjölbreytni í þjálfun. Lesarar ættu alltaf að vera búnir að ná tökum á tengslum bókstafs og hljóðs áður en slík þjálfun hefst.
Orðalisti með 1000 algengustu orðunum í útgefnu námsefni býður upp á margs konar þjálfun við lestur og ritun á sjónrænum orðaforða í lestrarkennslu. Þjálfunin getur verið hluti af lestrarkennslu, vinnu með samfelldan texta eða þáttur í íhlutun fyrir nemendur sem eru búnir að ná tökum á tengslum bókstafs og hljóðs en þurfa markvissa lesfimiþjálfun. Allra mikilvægast er að þjálfunin byggi á skýrum markmiðum og góðum kennslufræðilegum rökstuðningi en þannig gagnast hún nemandanum best." Lesið nánar um þetta góða námsefni og aðferðir með því að smella hér. .👉📑.👁
Námsleikirnir á þessari síðu eru byggðir á Sjónræna orðaforðalistanum og eru hugsaðir sem stuðningsefni við hann.
Nemendur eiga að ...
* lesa👁
* hlusta 🎧
* endurtaka 🦜
* og raða bókstöfum 🧩 ✅ í rétta röð.
Við leggjum áherslu á hittni og lærum að tengja saman hljóð og bókstafi í gegnum leikinn.
Við vinnum alltaf með 20 orð í senn og leggjum áherslu á hvernig þau eru notuð.
Ég hvet ykkur öll til að skrifa orðin niður þegar þið ljúkið við hverja einingu og þjálfa ykkur saman í að nota þau í heilum setningum.
Það er mikilvægt að tala um orðin á skemmtilegan hátt, leika sér með þau og gera þau lifandi. Þannig stuðlum við líka að því að þau festist í langtímaminninu.
Hvernig myndir þú nota orðið í setningu?